Skilmálar gjafakorta

Eftirfarandi skilmálar gjafakorta lýsa þeim skilmálum og skilyrðum sem gilda um notkun á Wolt gjafakortunum („gjafakortin“). Þessir skilmálar gjafakorta eru á milli þín, sem handhafa gjafakortsins, og Wolt, eins og lýst er í notendaskilmálunum. Með því að kaupa, samþykkja eða nota gjafakort samþykkir þú bæði þessa skilmála („skilmálar gjafakorta“) og notendaskilmála Wolt („notendaskilmálarnir“). Ef þú samþykkir ekki skilmálana skaltu ekki kaupa, nota eða samþykkja gjafakortið.

Þú getur afturkallað kaup á gjafakorti sem hefur ekki verið innleyst með því að hafa samband við þjónustuver Wolt í gegnum Wolt þjónustuna eða með tölvupósti (support@wolt.com), innan 14 daga frá kaupum í samræmi við gildandi lög og á grundvelli réttar til afturköllunar sem tilgreindur er í notendaskilmálunum. Vinsamlegast athugið að aðeins greiðandi getur hætt við kaup á gjafakorti.

Gjafakortin eru lokuð (e. closed-loop gift cards); gjafakortin eru ekki debet- eða kreditkort. Gjafakortin eru gefin út af Wolt, sem þó getur framselt skuldbindingar sínar samkvæmt gjafakortinu hvenær sem er, en í því tilviki verður slíkur framsalshafi útgefandi gjafakortsins og einn skuldbundinn handhafa gjafakortsins að lögum. Wolt Enterprises Oy og dóttur- og hlutdeildarfélög þess („félög innan Wolt samsteypunnar“), önnur en staðbundna Wolt félagið sem gefur út gjafakortið, bera enga ábyrgð á gjafakortunum og þú leysir hér með félög innan Wolt samsteypunnar meðvitað undan hvers kyns ábyrgð eða kröfum sem kunna að koma upp í tengslum við gjafakortið.

Þú getur aðeins innleyst gjafakortin fyrir hvers kyns gjaldgengri pöntun í gegn um wolt.com eða í gegnum Wolt appið („Wolt vettvanginn“) frá öllum söluaðilum sem Wolt býður upp á, eins og tilgreint er á Wolt vettvanginum á hverjum tíma.

Wolt áskilur sér rétt til að breyta aðferðinni við innlausn gjafakorta og/eða takmarka og/eða breyta gjaldgengum pöntunum sem hægt er að gera með gjafakortum, að eigin vild. Gjafakortin skulu innleyst jafnt með tilliti til allra söluaðila sem hægt er að panta hjá. Gjafakortin hafa 12 mánaða gildistíma, en eftir það rennur virði gjafakortsins út. Eftir að gjafakortið rennur út er ekki lengur hægt að innleysa það, nota það til greiðslu eða virkja það aftur og ónotað virði verður ekki endurgreitt.

Gjafakortum er ekki hægt að skila og þau eru ekki innleysanleg fyrir reiðufé nema þegar þess er krafist samkvæmt gildandi lögum. Gjafakort má ekki endurselja. Ekki má hækka eða endurnýja upphæðir gjafakorta. Þegar þú verslar með gjafakorti með innistæðu sem er lægri en heildarkaupverðið, verður þú að greiða mismuninn með öðrum greiðslumáta sem tiltækur er á aðganginum þínum.

Gjafakort má innleysa í því landi þar sem það var keypt, upp að útistandandi virði þess, á gildistíma þess (12 mánuðir). Ef gjafakort rennur út, má bæta ónotuðum innleystum fjárhæðum við aðgang notanda, ef þess er óskað innan árs. Engir vextir eru greiddir af ónotuðum fjárhæðum gjafakorts á gildistíma þess né eftir að það rennur út. Hægt er að leggja fram beiðni um innlausn í gegnum support@wolt.com.

Gjafakort er aðeins gilt ef það er fengið beint frá Wolt þjónustunni eða frá viðurkenndum þriðja dreifingaraðila. Gjafakort er ekki gilt og verður ekki virt, og Wolt Enterprises Iceland ehf. ber ekki ábyrgð, ef það er fengið frá óviðkomandi seljendum eða endursöluaðilum, þar með talið í gegnum uppboðssíður á netinu.

Gjafakortum sem týnast, skemmast eða er stolið verður ekki skipt út eða þau endurnýjuð. Wolt ber ekki ábyrgð á óheimilli notkun gjafakorta.

AÐ ÞVÍ MARKI SEM HEIMILT ER LÖGUM SAMKVÆMT BER WOLT EKKI ÁBYRGÐ GAGNVART NEINUM VEGNA ÓBEINS, REFSIVERÐS, SÉRSTAKS, VIÐBÓTAR, TILFALLANDI, AFLEIDDS EÐA ANNARS TJÓNS AF HVAÐA GERÐ EÐA TAGI SEM ER SEM Á EINHVERN HÁTT TENGIST GJAFAKORTUM. WOLT BER EKKI ÁBYRGÐ Á NEINU TAPI, TJÓNI EÐA MEIÐSLUM SEM ÞÚ GÆTIR ORÐIÐ FYRIR, ÞAR MEÐ TALIÐ EN EKKI TAKMARKAÐ VIÐ TAP EÐA Á NOKKURN HÁTT TENGT GJAFAKORTUM, JAFNVEL ÞÓTT WOLT OG/EÐA LEYFISVEITENDUM ÞESS HAFI ÁÐUR VERIÐ TILKYNNT UM MÖGULEIKANN Á SLÍKU TJÓNI. EF GJAFAKORT VIRKAR EKKI, MUN EINA ÚRRÆÐIÐ ÞITT OG EINA ÁBYRGÐ OKKAR, AÐ ÞVÍ MARKI SEM LÖG LEYFA, FELAST Í  ENDURNÝJUN ÞESS GJAFAKORTS.

Wolt áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum gjafakorta frá einum tíma til annars að eigin ákvörðun, án sérstakrar tilkynningar til þín, nema slíkrar tilkynningar sé krafist lögum samkvæmt. Tilkynning um breytingar verður með sanngjörnum hætti, sem gæti verið með tölvupósti á netfangið sem þú sendir Wolt þjónustunni, með því að birta endurskoðaða útgáfu þessara skilmála gjafakorta á þessari vefsíðu eða á Wolt þjónustunni („uppfærðir skilmálar“). Notkun þín á gjafakorti eftir að Wolt hefur birt uppfærðu skilmálana jafngildir samþykki þínu á uppfærðu skilmálunum. Uppfærðu skilmálarnir munu taka gildi frá og með birtingu þeirra eða á síðari dagsetningu sem tilgreind er í uppfærðu skilmálunum og munu gilda um notkun þína á gjafakorti frá þeim tíma. Dagsetning síðustu uppfærslu á þessum skilmálum gjafakorta er tilgreind á þessari síðu og allar breytingar á dagsetningu þessara skilmála gjafakorta skulu samsvara tilkynningu til þín um að skilmálar gjafakorta hafi breyst.

Fyrir frekari upplýsingar um gjafakort hafið samband við support@wolt.com.

Uppfært: 29.10.2026